Reglur Búðakirkjugarðs
Búðakirkjugarður er í umsjón stjórnar Búðakirkjugarðs. Skipaður umjónarmaður annast um hann en hægt er að hafa samband við þann aðila í gegnum netfangið budakirkja@gmail.com
I. KAFLI – Inngangur
1. gr. Umfang
Reglur þessar taka til allra framkvæmda, umgengni, minnismerkja og skreytinga í Búðakirkjugarði í skilningi laga nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftran og líkbrennslu og skulu hafa gildi innan Búðakirkjugarðs.
Stjórn Búðakirkjugarðs og umsjónaraðilar Búðakirkjugarðs fara með framkvæmd þessara reglna.
2. gr. Markmið
Markmið reglanna er að tryggja að minnismerki séu sett niður á grafstæði með samræmdum, öruggum og skipulegum hætti og að skreytingar séu viðeigandi fyrir stað, tíma og umhverfið.
Jafnframt setja reglur þessar stærðar- og umfangsmörk minnismerkja og viðmið um framkvæmdir sem tengjast greftrun, uppsetningu minnismerkja og umhirðu á grafreitum.
3. gr. Hugtakaskýringar
Í reglum þessum gilda eftirfarandi skilgreiningar:
-
Minnismerki: Samheiti fyrir legsteina, krossa o.fl., sem reist eru á grafstæðum.
-
Legsteinn: Varanlegt minnismerki úr steini sem ber nafn eða nöfn þeirra er hvíla í grafstæði og grafskrift.
-
Púltsteinn: Legsteinn sem liggur beint á jörðu og með skáhallandi flöt sem ber nafn eða nöfn þeirra er hvíla í grafstæði og grafskrift.
-
Platti: Niðurgrafin undirstaða legsteins úr járnbentri steinseypu.
-
Undirsteinn: Undirstaða eða sökkull legsteins, sem er af sama efni og legsteinninn sjálfur og er lagður í jarðvegsyfirborð eða á platta.
-
Grafstæði: Samheiti fyrir kistugrafstæði og duftgrafstæði.
-
Kistugrafstæði: Afmarkaður reitur í kirkjugarði sem úthlutað er af kirkjugarðsstjórn til aðstandenda til greftrunar líkkistu látins einstaklings eða látinna einstaklinga.
-
Duftgrafstæði: Afmarkaður reitur í kirkjugarði sem úthlutað er af kirkjugarðsstjórn til aðstandenda til greftrunar á duftkerjum með ösku látins einstaklings eða látinna einstaklinga.
-
Blómarammi: Rammi úr forsniðnum einingum úr steini sambærilegum og efni legsteins, sem afmarkar reit á gröf.
-
Skreytingar: Munir aðrir en minnismerki sem settir eru á grafstæði. Skreytingar geta verið varanlegar eða tímabundnar.
II. KAFLI – Leyfi og takmarkanir
4. gr. Leyfi
Þeir aðstandendur sem hyggjast setja minnismerki, blómaramma eða varanlegar skreytingar á grafstæði skulu tilkynna það til stjórnar eða umsjónarmanna Búðakirkjugarðs og jafnframt leggja fram skriflega lýsingu á því sem á að setja og fá skriflegt leyfi fyrir uppsetningu. Einnig geta aðstandendur falið sölumönnum minnismerkja uppsetninguna og þurfa þeir einnig að leggja fram skriflega lýsingu og fá skriflegt leyfi fyrir uppsetningu.
Skrifleg umsókn, lýsing og leyfi má fara fram í tölvupósti - budakirkja@gmail.com.
Minnismerkin og uppsetning þeirra er alfarið á ábyrgð aðstandenda og á kostnað þeirra að fengnu leyfi.
Nýjum grafstæðum í Búðakirkjugarði er úthlutað af stjórn garðsins. Grafir eru undirbúnar fyrir aðstandendur á umsömdum tíma. Frágangur á kistugrafstæðum er í höndum þess verktaka sem tekur gröfina en duftkersgrafstæði geta aðstandendur sjálfir mokað yfir samkvæmt leiðsögn.
Óheimilt er að fjarlægja minnismerki eða varanlega hluti af grafstæði án vitundar og leyfis stjórnar eða umsjónarmanna Búðakirkjugarðs.
5. gr Takmarkanir
-
Ekki má setja girðingar eða afmörkun af neinu tagi um einstök leiði eða fjölskyldugrafreiti.
-
Óheimilt er að gera eða reisa grafhýsi af nokkru tagi.
-
Minnismerki úr plasti eða öðrum ónáttúrulegum efnum eru ekki leyfileg.
-
Öll leiði skulu vera tyrfð. Ekki má setja lausa skrautsteina eða möl á leiði, í eða við minnismerki eða blómaramma. Á það einkum við um hvíta smásteina og steinvölur.
-
Óheimilt er að gróðursetja tré á leiði. Hafa skal samráð við stjórn eða umsjónarmenn garðsins um alla gróðursetningu fjölæringa og runnaplantna.
III. KAFLI – Kistugrafstæði
6. gr. Staðsetning og afmörkun
Umsjónarmenn garðins sjá um að marka kistugrafstæði og línu í þau sem staðsetur hvar bakhlið legsteins skuli liggja. Legsteinar og undirstöður þeirra skulu alltaf vel innan marka grafstæðis.
Stærð einfalds kistugrafstæðis er að jafnaði um 1 - 1,2 metrar á breidd en 2 - 2,5 metrar á lengd.
7. gr. Umfang minnismerkis á kistugrafreit
-
Hámarksbreidd legsteins á einfalt kistugrafstæði er 0,8 metrar, að meðtöldum undirsteini, en 1,8 metrar ef legsteinn nær yfir tvö grafstæði.
-
Nái legsteinn yfir fleiri en tvö grafstæði, skal þess gætt að steinninn fari ekki nær næstu grafstæðum til hvorrar handar en nemur 0,3 metrum.
-
Staðsetja skal minnismerki á kistugrafstæði við hina afmörkuðu línu fyrir bakhlið og skal framhlið vísa til austurs.
-
Hámarkshæð legsteins frá yfirborði jarðar er 1,2 metrar.
-
Allir legsteinar annað en púltsteinar skulu standa á undirsteini eða platta.
-
Blómarammi skal ekki vera breiðari en undirsteinn/legsteinn og ekki ná lengra fram en 0,80 metrar.
IV. KAFLI – Duftgrafstæði
8. gr. Staðsetning og afmörkun
Stjórn Búðakirkjugarðs sér um að marka duftgrafstæði og línu í þau sem staðsetur hvar bakhlið legsteins skuli liggja. Legsteinar og undirstöður þeirra skulu alltaf vera vel innan marka grafstæðis.
Einfalt duftgrafstæði skal vera 0,75 × 0,75 metrar, tvöfalt duftgrafstæði er 1,5 × 0,75 metrar.
Heimilt er að jarðsetja duftker í kistugrafstæði sem þegar hefur verið jarðsett í og er þá innan marka þess leiðis.
9. gr. Umfang minnismerkis á duftgrafreit
-
Hámarksbreidd legsteins á einfalt duftgrafstæði er 0,7 metrar, að meðtöldum undirsteini, en 1,3 metrar ef legsteinn nær yfir tvö grafstæði.
-
Nái legsteinn yfir fleiri en tvö grafstæði, skal þess gætt að steinninn fari ekki nær næstu grafstæðum til hvorrar handar en nemur 0,3 metrum.
-
Staðsetja skal grafsteina á duftgrafstæði við hina afmörkuðu línu fyrir bakhlið, fyrir miðju grafstæðis og skal framhlið vísa til austurs.
-
Hámarkshæð legsteins frá yfirborði jarðar er 1,2 metrar.
-
Allir legsteinar annað en púltsteinar skulu standa á undirsteini eða platta.
-
Ekki er heimilt að hafa blómaramma á duftgrafstæðum.
V. KAFLI – Skreytingar
10. gr. Varanlegar kreytingar
Varanlegir skrautmunir skulu vera eftir fremsta megni úr endingargóðum efnum sem standast veður og vind og vera tryggilega fest niður.
Upplýsa skal umsjónarmenn eða stjórn Búðakirkjugarðs um varanlegar skreytingar eins og lýst er
í I. kafla 4.gr..
11. gr. Tímabundnar skreytingar
Séu settar tímabundnar skreytingar, eins og afskorin blóm, leiðisgreinar, kerti eða annað slíkt skal gæta þess að allt sé vel fest og geti ekki fokið eða dreifst um garðinn. Forðast skal að nota skraut úr plasti eða öðrum efnum sem eru skaðleg náttúru ef það fýkur út í friðlandið eða til sjós.
Ljós má setja upp á jólum. Miðað er við tímabilið frá 1. nóvember til 1.mars. Aðstandendur sjá um uppsetningu og umhirðu á ljósum. Gæta skal þess að ljós séu heil, örugg og ætluð til útinotkunar.
Uppfylli ljós ekki kröfu um öryggi mun það vera fjarlægt eða aftengt af umsjónarmanni Búðakirkjugarðs.
12.gr. Líftími skreytinga
Aðstandendur bera ábyrgð á að viðhalda, lagfæra eða skipta út skreytingum eftir þörfum.
Sé það ekki gert er umsjónarmanni Búðakirkjugarðs heimilt að fjarlægja og farga skreytingum sem eru orðnar skemmdar, eiga það á hættu að fjúka eða er ekki lengur prýði af, hvort heldur sem varanlegar eða tímabundnar.
VI. KAFLI - Almenn ákvæði
13. gr. Aðrar merkingar
Setja má trékross á alla grafreiti í stað legsteins.
Trékrossar skulu vera úr gegnheilum fúavörðum við. Hámarkshæð trékrossa á kistugrafstað er 1,3 metrar frá jörðu.
Einnig er leyfilegt er að setja upp bráðabirgðamerkingar á grafir, s.s. trékrossa eða svonefnd púlt úr krossviði á tveimur tréhælum með áföstu skilti, sem svo má síðar skipta út fyrir legstein eða öðru varanlegu minnismerki.
14. gr. Öryggi og ending minnismerkja
Öll samskeyti á legsteinum eiga að vera límd saman. Nota skal viðurkennt þurrefni til slíkrar límingar.
Þegar legsteinar að viðbættum platta eru hærri en 0,8 metrar skulu allar samsetningar vera teinaðar saman með ryðfríum stálteinum. Teinarnir skulu límast inn í steinhlutina með tveggja þátta steinlími.
15. gr. Undirbúningur og frágangur
Skylt er að hafa jarðvegsskipti undir legstein. Skal grafa 0,3 metra undir jarðvegsyfirborð fyrir legstein á alla kanta.
Eftir að legsteinn hefur verið komið fyrir skal leggja að frostfríu efni og þjappa vel að. Sömu aðferðir skal beita ef undirstaða legsteins er platti.
16. gr. Umgengni
Kirkjugarðar eru friðhelgir samkvæmt lögum og því er sérhver hávaði og ys bannaður.
Öllum er frjáls aðgangur að kirkjugarðinum með þeim takmörkunum sem af þessum reglum leiða.
Öll umferð vélknúinna ökutækja er bönnuð nema með sérstöku leyfi hverju sinni.
Gróður á leiðum er á ábyrgð aðstandenda en þó hafa umsjónarmenn garðsins forsjá og getur snyrt og/eða fjarlægt gróður valdi hann óþægindum eða hættu. Hafa skal samráð við aðstandendur eins og framast er unnt.
17. gr. Breytingar og brot á reglum
Stjórn Búðakrikjugarðs er heimilt að biðja um að láta fjarlægja af grafreitum minnismerki, gróður, girðingar, skrautmuni ofl. eða fara fram á breytingar til samræmis við reglur þessar. Aðstandendum er tilkynnt um málið og gefinn hóflegur frestur til þess að ljúka framkvæmdum. Ef ekki er brugðist við er umsjónarmönnum Búðakirkjugarðs heimilt að framkvæma breytingarnar á kostnað aðstandenda í samræmi við reglur þessar og 26. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993.
Umsjónarmenn Búðakirkjugarðs bera ekki skaðabótaskyldu ef minnismerki eða annað sem á grafstæði kann að vera skemmist eða ónýtist af völdum náttúruafla eða skemmdarvarga.
18. gr. Framfylgd laga
Stjórn Búðakirkjugarðs skal veita aðstandendum leiðbeiningar varðandi reglur þessar sé þess óskað.
Brot gegn reglum þessum varða viðurlögum skv. 52. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993.
19. gr. Undanþágur
Í sérstökum tilvikum getur stjórn Búðakrikjugarðs heimilað aðrar gerðir minnismerkja en kveðið er á um í reglum þessum og skal sækja um slíkar undanþágur sérstaklega.
20. gr. Ágreiningur
Ágreiningur um túlkun þessara reglna má skjóta til úrskurðar kirkjugarðaráðs innan þriggja mánaða frá ákvörðun kirkjugarðsstjórnar.
21. gr. Gildistími
Reglur þessar, sem eru settar á grundvelli tillaga Búðasóknar með heimild í 51. gr laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993, staðfestist hér með og tekur gildi þegar í stað.
Tekið fyrir og samþykkt á aðalfundi Búðasóknar og Búðakirkjugarðs 27. Apríl 2026
Terms and conditions
Búðakirkja reserves the right to cancel, or move bookings, e.g. due to unexpected activities in the church involving parishioners, the maintenance of the church, or other uncontrollable circumstances.
All rentals at the church are according to a conversation between the supervisor and the buyer and take place on the day and at the time agreed.
The buyer promises to obey to the church rules as stated on the website.
If the agreed time frame is not respected, Búðakirkja reserves the right to charge extra for the presence of the church warden, both at the time agreed upon and the real-time that the use takes place due to delay.
When booking the church, a confirmation fee is paid, which is non-refundable.
The final fee has to be paid at least 5 days prior to the booked date. Cancellations are refundable in full, with the exception of the confirmation fee, up to 5 days before the booked date, but half the fee is charged if cancelled later.
The seller promises the buyer full confidentiality regarding all information he provides in connection with the transaction. Information will not be passed on to third parties under any circumstances.
This agreement is in accordance with Icelandic law. If a case of any dispute, it shall be brought before the District Court of Vesturland Iceland.
